„Hann dýfði sér klárlega, þú sérð bara hvernig hann dettur. Þetta var dýfa, pjúra dýfa," sagði Heiðar Ægisson leikmaður Stjörnunnar aðspurður að því hvort hann hafi brotið á Tobias Thomsen undir lok fyrri hálfleiks þegar Pétur Guðmundsson dæmdi vítaspyrnu.
Lestu um leikinn: Valur 2 - 2 Stjarnan
„Ég hélt að hann væri að fara gefa honum gult spjald fyrir dýfu. Þess vegna beið hann svona lengi en svo þegar ég sá að hann benti á punktinn, ég hreinlega trúði því ekki," sagði Heiðar.
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir