Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 04. desember 2018 20:28
Ívan Guðjón Baldursson
Eva Núra skrifar undir nýjan samning við FH
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eva Núra Abrahamsdóttir er búin að skrifa undir nýjan samning við FH eftir fyrsta sumarið sitt hjá félaginu.

Eva Núra er fædd 1994 og uppalin hjá Fylki. Hún lék 13 leiki í Pepsi-deild á sínu fyrsta tímabili er FH féll og gæti gegnt stóru hlutverki í Inkasso-deildinni næsta sumar.

Eva er þaulreynd og á 123 leiki að baki í meistaraflokki og einn A-landsleik.

„Eva Núra er leikreyndur leikmaður sem mun án efa verða mikilvægur hlekkur í liðinu á næsta tímabili í því verkefni að koma liðinu aftur í deild þeirra bestu," segir á Facebook síðu FH.

„Það er okkur FH-ingum því mikið ánægjuefni að hún hafi ákveðið að halda áfram í FH. #ViðerumFH"
Athugasemdir
banner
banner