Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 04. janúar 2019 09:40
Magnús Már Einarsson
Arnar Viðars og Eiður Smári taka við U21
Eiður Smári Guðjohnsen og Arnar Þór Viðarsson á æfingu með íslenska landsliðinu á sínum tíma.
Eiður Smári Guðjohnsen og Arnar Þór Viðarsson á æfingu með íslenska landsliðinu á sínum tíma.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KSÍ hefur boðað til fréttamannafundar síðdegis í dag þar sem nýtt þjálfarateymi U21 árs landsliðs karla verður kynnt.

Eyjólfur Sverrisson hefur þjálfað U21 liðið frá 2009 með Tómas Inga Tómasson sér til aðstoðar. Undir þeirra stjórn fór Ísland á EM í Danmörku árið 2011.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net eru Arnar Þór Viðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen að taka við liðinu. Fótbolti.net greindi frá því á dögunum að þeir væru í viðræðum við KSÍ.

Arnar verður aðalþjálfari en Eiður verður honum til aðstoðar. Þeir voru herbergisfélagar í landsliðinu á sínum tíma.

Arnar Þór hefur verið að vinna í Belgíu síðan hann hætti að spila fótbolta. Hann var þjálfari og aðstoðarþjálfari hjá Cercle Brugge áður en hann hóf að vinna hjá Lokeren árið 2015. Hann hefur verið aðstoðarþjálfari Lokeren, en einnig hefur hann verið þjálfari til bráðabirgða, þá þegar aðalþjálfarinn hefur verið rekinn.

Arnar byrjaði fyrr á þessu ári að njósna fyrir íslenska landsliðið og nú er hann að taka við U21 liðinu.

Eiður Smári tilkynnti að hann væri búinn að leggja skóna á hilluna í fyrra. Hann hefur síðan unnið sem sérfræðingur í sjónvarpi, meðal annars í kringum leiki hjá íslenska landsliðinu. Hann hefur einnig verið að sækja sér þjálfaragráður, en þetta verður hans fyrsta þjálfarastarf.
Athugasemdir
banner
banner
banner