Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 14. ágúst 2019 11:05
Magnús Már Einarsson
Klopp í Ronaldo nærbuxum á liðsfundi fyrir úrslitaleikinn
Mynd: Getty Images
Leikmenn Liverpool sprungu úr hlátri þegar Jurgen Klopp hélt liðsræðu fyrir 3-1 tapið gegn Real Madrid í úrslitum Meistaradeildarinnar í fyrra.

Klopp var þá í "CR7" nærbuxum. Nærbuxurnar eru hluti af fatalínu Cristiano Ronaldo sem var helsta stjarna Real Madrid á þessum tíma.

„Við sáum að hann var í boxer nærbuxum frá Cristiano Ronaldo," sagði Georginio Wijnaldum, miðjumaður Liverpool, þegar hann rifjaði atviikð upp í viðtali í vikunni.

„Hann var með skyrtuna girta ofan í "CR7" nærbuxur. Allir í búningsklefanum lágu í gólfinu hlæjandi. Þetta braut ísinn."

„Vanalega eru allir alvarlegir og einbeittir á svona stundum en hann var rólegur og kom með þennan brandara."

Athugasemdir
banner
banner
banner