Albanía og Ísland eigast við klukkan 18:45 í undankeppni Evrópumótsins en leikurinn fer fram í Elbasan.
Það eru töluverðar breytingar á albanska liðinu. Ermir Lenjani og Kastriot Dermaku koma inn í vörnina fyrir þá Mergim Mavraj og Odise Roshi.
Klaus Gjasula kemur þá inn á miðjuna fyrir Amir Abrashi og þá er sóknarlínunni gjörsamlega breytt.
Ledian Memushaj, Sokol Cikalleshi og Rey Manaj koma allir inn í liðið en Bekim Balaj, Myrto Uzuni og Ylber Ramadani koma úr liðinu. Liðið mun spila 4-3-3.
Byrjunarlið Albaníu:
Thomas Strakosha (M)
Ermir Lenjani
Berat Djimsiti
Elseid Hysaj (F)
Kastriot Dermaku
Keidi Bare
Adrian Ismajili
Klaus Gjasula
Ledian Memushaj
Sokol Cikalleshi
Rey Manaj
Athugasemdir