Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 09. nóvember 2019 21:15
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Pioli ekki tilbúinn til að staðfesta komu Zlatan
Fer Zlatan til AC Milan?
Fer Zlatan til AC Milan?
Mynd: Getty Images
Stefano Pioli knattspyrnustjóri AC Milan er nú að undirbúa lærisveina sína fyrir stórleik á morgun, framundan er heimsókn til Juventus.

Pioli sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag, þar barst talið að sjálfsögðu að Zlatan Ibrahimovic en þær fréttir bárust frá Bandaríkjunum í gær að sænski sóknarmaðurinn væri við það að semja við AC Milan. Pioli var þó ekki tilbúinn að staðfesta það.

„Ibra er frábær leikmaður en það er langt í janúar mánuð, þá er tíminn til að gefa út yfirlýsingar varðandi félagaskipti," sagði Pioli.

Zlatan spilaði með AC Milan á árunum 2010-2012, hann fór til Bandaríkjanna vorið 2018. Zlatan samdi þá við LA Galaxy en samningur hans við félagið rennur út um áramótin.

Athugasemdir
banner
banner
banner