Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25134 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR04.12.2024, 16:39

Benedikt Warén í Stjörnuna (Staðfest)

Stjarnan tilkynnti rétt í þessu að félagið væri búið að ganga frá kaupum á Benedikt V. Warén en hann kemur frá Vestra. Stjarnan hafði síðustu vikur reynt að krækja í Benedikt og var fjallað um það í síðasta mánuði að Vestri hefði hafnað tveimur tilboðum frá Stjörnunni. Breiðablik hafði sömuleiðis áhuga á Benedikt og Valur var einnig sagt hafa áhuga. Benedikt er 23 ára kantmaður sem var hjá Val fram í 3. flokk þegar hann skipti yfir í Breiðablik. Í meistaraflokki hefur hann leikið með Blikum, ÍA og Vestra. Á liðnu tímabili skoraði hann fimm mörk og lagði upp átta í Bestu deildinni og var einn af lykilmönnum Vestra sem hélt sér uppi í efstu deild.

FRÉTTIR04.12.2024, 14:27

Þróttur Vogum fær Jóhannes Karl alfarið frá Víkingi (Staðfest)

Jóhannes Karl Bárðarson er alfarið genginn í raðir Þróttar Vogum en hann kemur frá Víkingi. Jóhannes Karl lék á láni með Þrótti seinni hluta tímabilsins 2023 og allt síðasta tímabili. Fyrri hluta tímabilsins 2023 var hann á láni hjá Ægi. Hann er fæddur árið 2003 og er uppalinn hjá Víkingi. Hann hefur skorað fjögur mörk í 45 KSÍ leikjum.

FRÉTTIR04.12.2024, 12:32

Damir búinn að skrifa undir hjá Asíufélaginu (Staðfest)

Varnarmaðurinn Damir Muminovic hefur skrifað undir samning við fótboltafélagið DPMM í Brúnei en liðið spilar í úrvalsdeildinni í Singapúr og er í sjötta sæti af níu liðum. Damir staðfestir þetta í <a href="https://www.mbl.is/sport/efstadeild/2024/12/04/damir_samdi_vid_asiska_felagid/" target="_blank">samtali við mbl.is</a>. Damir mun leika með liðinu frá áramótum og fram á næsta sumar.

FRÉTTIR03.12.2024, 20:33

Sóley Edda keypt til Vals (Staðfest)

Valur hefur náð samkomulagi við Stjörnuna um kaup á Sóleyju Eddu Ingadóttur en þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjörnunni í kvöld.

FRÉTTIR03.12.2024, 14:25

ÍBV sækir serbneskan miðjumann (Staðfest)

ÍBV tilkynnti í dag að serbneski miðjumaðurinn Milan Tomic væri genginn í raðir félagsins. Hann kemur frá Vrsac sem leikur í næstefstu deild Serbíu. Milan er 24 ára og hefur leikið með nokkrum liðum í Serbíu og einnig með Brera í makedónsku úrvalsdeildinni. Hann var á sínum tíma unglingaliðum Rauðu stjörnunnar, stærsta félags Serbíu. Hann er fjórði leikmaðurinn sem ÍBV fær í sínar raðir í vetur. Omar Sowe og Arnór Ingi Kristinsson sömdu í síðasta mánuði og fyrr í dag tilkynnti félagið um komu sænsks miðvarðar.

FRÉTTIR03.12.2024, 12:16

ÍBV krækir í sænskan miðvörð (Staðfest)

ÍBV tilkynnti rétt í þessu að sænski miðvörðurinn Mattias Edeland væri genginn í raðir félagsins. Edeland skrifar undir tveggja ára samning við ÍBV. Hann er 25 ára gamall og kemur til ÍBV frá sænska félaginu IFK Stocksund sem leikur í þriðju efstu deild Svíþjóðar.

FRÉTTIR03.12.2024, 11:53

Aron Kristófer riftir við Þór (Staðfest)

Aron Kristófer Lárusson er búinn að rifta samningi sínum við Þór og mun því ekki leika áfram með Þórsurum á næsta ári. Aron var keyptur til Þórsara frá KR í sumarglugganum, skrifaði undir samning út tímabilið 2026, og lék sjö leiki með liðinu í Lengjudeildinni seinni hluta tímabilsins. Hann er 26 ára vinstri bakvörður sem uppalinn er hjá Þór en hefur einnig spilað með Völsungi, ÍA og KR á sínum ferli.

FRÉTTIR03.12.2024, 06:00

ÍBV fær fjölhæfan Bandaríkjamann (Staðfest)

<p>Ally Clark er gengin til liðs við ÍBV og mun taka slaginn með liðinu í Lengjudeildinni næsta sumar.</p><p>Hún er fjölhæfur leikmaður sem hefur undanfarið leikið með Odense í Danmörku og Apollon frá Kýpur sem var nálægt því að komast í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í ár.</p><p>Clark kemur frá Bandaríkjunum en hún var í háskóla í Columbia og Colorado áður en hún færði sig yfir til Evrópu.</p>

FRÉTTIR01.12.2024, 18:22

Daníel Hafsteins og Sveinn Margeir í Víking (Staðfest)

Víkingur hefur fengið Daníel Hafsteinsson og Svein Margeir Hauksson frá KA. Báðir riftu þeir samningum sínum við bikarmeistarana. Daníel, sem er 25 ára, átti virkilega gott tímabil með KA í sumar, skoraði fimm mörk í 25 deildarleikjum og tvö mörk í fjórum bikarleikjum. Hann var á bekknum í liði ársins hér á Fótbolti.net. Sveinn Margeir, sem er 23 ára sóknarmiðjumaður, verður einungis í um sex vikur á Íslandi næsta sumar þar sem hann er í háskólanámi í Bandaríkjunum.

FRÉTTIR29.11.2024, 13:30

Ásgeir Eyþórs áfram hjá Fylki (Staðfest)

Fylkir tilkynnti í dag að Ásgeir Eyþórsson væri búinn að framlengja samning sinn við félagið um eitt ár. Ásgeir er 31 árs miðvörður sem sagði við Fótbolta.net fyrr í þessum mánuði að hann væri að íhuga hvort hann myndi leggja skóna á hilluna. Hann hefur nú tekið ákvörðun um að taka slaginn með uppeldisfélaginu í Lengjudeildinni næsta sumar.

FRÉTTIR28.11.2024, 10:30

Lampard orðinn stjóri Coventry (Staðfest)

Frank Lampard, fyrrum miðjumaður Chelsea og enska landsliðsins, hefur verið ráðinn stjóri Coventry og skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning. Lampard tekur við Coventry í sautjánda sæti Championship-deildarinnar, tveimur stigum fyrir ofan fallsvæðið. Hann er ráðinn í stað Mark Robins sem var rekinn eftir sjö ár í starfi. Þetta er fimmta stjórastarf Lampard sem hefur áður stýrt Derby County, Everton og svo Chelsea tvisvar. Hann hefur unnið við fjölmiðlastörf síðan hann lét af störfum sem bráðabirgðastjóri Chelsea í maí 2023. Fyrsti leikur Lampard með stjórnartaumana hjá Coventry verður heimaleikur gegn Cardiff á laugardaginn.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.