Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
banner
   mið 03. apríl 2024 13:30
Elvar Geir Magnússon
Varnarmenn snúa aftur til æfinga hjá Man Utd
Varane og Maguire eru mættir aftur til æfinga.
Varane og Maguire eru mættir aftur til æfinga.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Manchester United heimsækir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld. Erik ten Hag stjóri United greindi frá því á fréttamannafundi í dag að United sé að endurheimta nokkra varnarmenn.

„Okkur hefur skort möguleika varnarlega en góðu fréttirnar eru þær að Raphael Varane og Jonny Evans snúa aftur til æfinga í dag. Harry Maguire var mættur aftur í gær." segir Ten Hag.

United hefur lent í miklum meiðslavandræðum á tímabilinu en Lisandro Martínez og Victor Lindelöf eru meiddir.

Manchester United komst yfir gegn Brentford um síðustu helgi í uppbótartíma en markið kom algjörlega gegn gangi leiksins. Brentford jafnaði svo strax á eftir og 1-1 urðu úrslitin.

„Ég er búinn að vera nægilega lengi í fótbolta til að skilja af hverju svona gerist. Stundum ertu ekki að spila vel en við erum Manchester United og þurfum að vinna alla leiki. Það er ekki hægt að gefa forystuna svona frá sér, það voru mestu vonbrigðin," segir Ten Hag.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 35 25 5 5 85 28 +57 80
2 Man City 34 24 7 3 82 32 +50 79
3 Liverpool 35 22 9 4 77 36 +41 75
4 Aston Villa 35 20 7 8 73 52 +21 67
5 Tottenham 33 18 6 9 67 52 +15 60
6 Man Utd 34 16 6 12 52 51 +1 54
7 Newcastle 34 16 5 13 74 55 +19 53
8 West Ham 35 13 10 12 56 65 -9 49
9 Chelsea 33 13 9 11 63 59 +4 48
10 Bournemouth 35 13 9 13 52 60 -8 48
11 Wolves 35 13 7 15 48 55 -7 46
12 Brighton 34 11 11 12 52 57 -5 44
13 Fulham 35 12 7 16 51 55 -4 43
14 Crystal Palace 35 10 10 15 45 57 -12 40
15 Everton 35 12 8 15 37 48 -11 36
16 Brentford 35 9 8 18 52 60 -8 35
17 Nott. Forest 35 7 9 19 42 62 -20 26
18 Luton 35 6 7 22 48 77 -29 25
19 Burnley 35 5 9 21 38 70 -32 24
20 Sheffield Utd 35 3 7 25 34 97 -63 16
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner