Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   fim 04. apríl 2024 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ten Hag: Spiluðum frábærlega og áttum skilið að vinna
Mynd: Getty Images

Erik ten Hag var að vonum svekktur með niðurstöðuna eftir leik Manchester United gegn Chelsea í kvöld.


United byrjaði leikinn afar illa og lenti tveimur mörkum undir en kom til baka og náði forystunni en tvö mörk frá Cole Palmer seint í uppbótatíma tryggði Chelsea öll stigin.

„Við byrjuðum illa, spaörkuðum boltanum í burtu og vörðumst illa. En þú sást að við vorum með yfirhöndina í leiknum og spiluðum frábærlega, við áttum skilið að vinna," sagði Ten Hag.

„Við getum ekki gefið þetta svona frá okkur og hefðum átt að takast betur á við þetta. Þetta er liðsframmistaða, það er hægt að benda á einn af leikmönnunum en þetta snýst um liðsframmistöðuna."


Athugasemdir
banner
banner
banner