Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   þri 05. mars 2024 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeildin í dag - Allt undir hjá Bayern
Mynd: EPA
Tveir leikir fara fram í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld en það mun skýrast hvaða tvö lið komast fyrst inn í 8-liða úrslitin.

Spænska liðið Real Sociedad fær Paris Saint-Germain í heimsókn til San Sebastian.

PSG vann fyrri leikinn 2-0 í París og freistar þess að komast áfram í næstu umferð.

Bayern München á erfitt verkefni fyrir höndum er liðið tekur á móti Lazio. Ítalska liðið vann fyrri leikinn, 1-0, í Róm, en ef Bayern tapar þá verður þetta líklega síðasti leikur Thomas Tuchel sem þjálfari liðsins.

Leikir dagsins:
20:00 Real Sociedad - PSG
20:00 Bayern - Lazio
Athugasemdir
banner
banner