Kai Havertz var valinn besti maður leiksins í 3-0 sigri Arsenal á Brighton í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Havertz skoraði annað mark Arsenal í leiknum eftir laglega sendingu Jorginho og þá átti Þjóðverjinn stoðsendinguna í þriðja markinu sem Leandro Trossard skoraði.
Sky gefur Havertz 8 í einkunn. Oleksandr Zinchenko var slakastur í sigurliðinu með aðeins 5 í einkunn.
Brighton: Verbruggen (7), Lamptey (5), Van Hecke (5), Dunk (5), Estupinan (5), Gross (6), Baleba (6), Moder (6), Enciso (7), Adingra (6), Welbeck (6).
Varamenn: Buonanotte (6), Pedro (6), Fati (6).
Arsenal: Raya (7), White (7), Saliba (7), Gabriel (7), Zinchenko (5), Odegaard (7), Rice (7), Jorginho (7), Saka (7), Havertz (8), Jesus (7).
Varamenn: Trossard (7), Martinelli (6), Tomiyasu (6).
Athugasemdir