Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   lau 06. apríl 2024 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England í dag - Arsenal og Man City bæði á útivelli
Arsenal fer á erfiðan útivöll
Arsenal fer á erfiðan útivöll
Mynd: Getty Images
Í dag hefst 32. umferð ensku úrvalsdeildarinnar en titilbaráttulið Arsenal og Manchester City eru bæði á útivelli.

Englandsmeistararnir í Man City heimsækja Crystal Palace á Selhurst Park klukkan 11:30.

Man City er þremur stigum frá toppliði Liverpool og fær það góðan möguleika á að ná erkifjendum sínum þessa helgina. Palace hefur aðeins tapað einum af síðustu fimm heimaleikjum sínum og gæti þvi Man City þurft að hafa verulega fyrir hlutunum.

Fallbaráttulið Everton og Burnley mætast á Goodison Park á meðan Luton spilar við Bournemouth. Aston Villa tekur á móti Brentford á Villa Park og þá spilar Fulham við Newcastle United á Craven Cottage. Wolves og West Ham eigast við á Molineux-leikvanginum.

Klukkan 16:30 heimsækir Arsenal lið Brighton en heimamenn hafa aðeins tapað einum leik á heimavelli sínum á tímabilinu. Það tap kom gegn West Ham í byrjun tímabilsins.

Leikir dagsins:
11:30 Crystal Palace - Man City
14:00 Everton - Burnley
14:00 Luton - Bournemouth
14:00 Aston Villa - Brentford
14:00 Fulham - Newcastle
14:00 Wolves - West Ham
16:30 Brighton - Arsenal
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 35 25 5 5 85 28 +57 80
2 Man City 34 24 7 3 82 32 +50 79
3 Liverpool 35 22 9 4 77 36 +41 75
4 Aston Villa 35 20 7 8 73 52 +21 67
5 Tottenham 33 18 6 9 67 52 +15 60
6 Man Utd 34 16 6 12 52 51 +1 54
7 Newcastle 34 16 5 13 74 55 +19 53
8 West Ham 35 13 10 12 56 65 -9 49
9 Chelsea 33 13 9 11 63 59 +4 48
10 Bournemouth 35 13 9 13 52 60 -8 48
11 Wolves 35 13 7 15 48 55 -7 46
12 Brighton 34 11 11 12 52 57 -5 44
13 Fulham 35 12 7 16 51 55 -4 43
14 Crystal Palace 35 10 10 15 45 57 -12 40
15 Everton 35 12 8 15 37 48 -11 36
16 Brentford 35 9 8 18 52 60 -8 35
17 Nott. Forest 35 7 9 19 42 62 -20 26
18 Luton 35 6 7 22 48 77 -29 25
19 Burnley 35 5 9 21 38 70 -32 24
20 Sheffield Utd 35 3 7 25 34 97 -63 16
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner