Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   sun 07. apríl 2024 17:29
Brynjar Ingi Erluson
Albert í fjórða sæti yfir markahæstu menn Seríu A
Albert er með jafn mörg mörk og Paulo Dybala, Victor Osimhen og Duvan Zapata
Albert er með jafn mörg mörk og Paulo Dybala, Victor Osimhen og Duvan Zapata
Mynd: Getty Images
Albert Guðmundsson skoraði 12. mark sitt í Seríu A er hann kom Genoa í 2-1 gegn Hellas Verona í dag.

Íslenski landsliðsmaðurinn hefur verið funheitur á leiktíðinni og er hann sennilega að tryggja sér félagaskipti í stærra félag eftir þetta tímabil.

Hann skoraði tólfta deildarmark sitt í dag er hann skoraði af stuttu færi úr teignum eftir að markvörður Verona hafði varið boltann út í teiginn.

Albert kom þar Genoa í 2-1 og er hann nú 4. markahæsti leikmaður deildarinnar ásamt Paulo Dybala, Duvan Zapata og Victor Osimhen.

Magnað afrek hjá Alberti en markið hans má sjá hér fyrir neðan.

Sjáðu markið hér
Athugasemdir
banner
banner