Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   sun 07. apríl 2024 15:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Díaz kom gestunum verðskuldað yfir - Mjög slakur varnarleikur
Mynd: EPA
Eftir ágætis fyrstu mínútur hjá Manchester United hefur Liverpool haft yfirhöndina í leik liðanna á Old Trafford. Andre Onana hefur haft í nægu að snúast í marki United og er hann ástæðan fyrir því að Liverpool leiðir einungis með einu marki þegar þetta er skrifað.

Markið kom á 23. mínútu eftir hornspyrnu. Darwin Nunez var illa dekkaður inn á teignum, hann komst í boltann og Luis Díaz náði svo að húkka boltanum í netið. Verðskulduð forysta.

Aaron Wan-Bissaka missti af Nunez sem átti skalla sem datt á fjærsvæðið og þar var Díaz aleinn.

„Manchester United var með alla áherslu á Virgil van Dijk en það var annar maður, Darwin Nunez, sem komst í fyrsta boltann. Díaz hittir boltann og Liverpool er komið yfir," sagði Jamie Carragher á Sky Sports.

Markið hjá Díaz má sjá með því að smella hér.
Athugasemdir
banner
banner
banner