Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
banner
   sun 07. apríl 2024 23:54
Brynjar Ingi Erluson
Klopp: Ef Man Utd spilar eins og það gerði í dag þá mun Arsenal 100 prósent vinna þann leik
Jürgen Klopp vonast til þess að Man Utd verði upp á sitt besta gegn Arsenal
Jürgen Klopp vonast til þess að Man Utd verði upp á sitt besta gegn Arsenal
Mynd: Getty Images
Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur ekki mikla trú á að Manchester United takist að vinna Arsenal ef liðið spilar eins og það gerði gegn Liverpool í dag.

Liverpool er nú í öðru sæti deildarinnar með 71 stig eins og Arsenal, sem er með betri markatölu.

Bítlaborgarliðið nýtti færin illa á Old Trafford í dag og rétt náði að bjarga stigi í lokin, en Liverpool þarf nú að treysta á að Arsenal tapi stigum í síðustu umferðum deildarinnar.

Arsenal á eftir að mæta Aston Villa, Chelsea, Tottenham og Manchester United, en það mætir einmitt United þann 11. maí á Old Trafford. Klopp segist ekki hafa mikla trú á því verkefni ef United spilar eins og það gerði í dag.

„Arsenal er mjög gott fótboltalið. Ef Man Utd spilar eins og það gerði í dag þá mun Arsenal vinna leikinn. Ég er 100 prósent viss um það,“ sagði Klopp.
Athugasemdir
banner
banner