Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   sun 07. apríl 2024 15:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Neville skýtur á Bruno og Casemiro: Ótrúlegt
Fyrirliðinn gagnrýndur.
Fyrirliðinn gagnrýndur.
Mynd: EPA
Gary Neville, sem aðstoðar við lýsingu á leik Man Utd og Liverpool á Sky Sports, gagnrýnir þá Bruno Fernandes og Casemiro í lýsingu sinni frá leiknum.

Liverpool er 0-1 yfir í hálfleik en staðan gæti hæglega verið 0-2 eða jafnvel 0-3 fyrir gestina. Neville, sem er fyrrum leikmaður United, vill sjá tvíeykið á miðsvæðinu gera mun betur.

„Sumt af því sem Bruno Fernandes og Casemiro hafa gert í fyrri hálfleiknum... þetta er í raun ótrúlegt miðað við reynsluna sem þeir búa yfir," sagði Neville. Með þeim tveimur á miðsvæðinu er hinn ungi Kobbie Mainoo.

Liverpool hefur trekk í trekk getað keyrt með mörgum mönnum á varnarmenn Manchester United þar sem miðjumenn United hafa verið illa staðsettir og hægir til baka þegar boltinn tapast.

Athugasemdir
banner