Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   mán 14. desember 2020 23:19
Brynjar Ingi Erluson
Papu Gomez reifst við Gasperini - Á leið frá félaginu
Alejandro Papu Gomez
Alejandro Papu Gomez
Mynd: Getty Images
Alejandro Gomez, fyrirliði Atalanta, er á förum frá félaginu í janúar en Fabrizio Romano greinir frá þessu á Twitter.

Gomez er 32 ára gamall og hefur verið á mála hjá Atalanta frá 2014 en hann er í guðatölu hjá stuðningsmönnum félagsins.

Hann hefur verið partur af magnaðri uppbyggingu liðsins og hefur hann nú þegar skorað fimm mörk og fjórar stoðsendingar í fimmtán leikjum.

Gomez er nú á förum frá félaginu eftir rifrildi við Gian Piero Gasperini, þjálfara liðsins, en Gomez vill komast frá félaginu í janúar.

„Þú kemst að sannleikanum þegar ég yfirgef félagið, sagði Gomez á dögunum.

Gomez hefur spilað yfir 250 leiki fyrir Atalanta, skorað 59 mörk og lagt upp 71 mark.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner