Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   lau 18. apríl 2020 18:50
Ívan Guðjón Baldursson
Hvíta-Rússland: Willum var í byrjunarliði BATE
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
BATE Borisov 0 - 0 Zhodino
0-0 Pavel Nekhajchik, misnotað víti ('41)

Willum Þór Willumsson lék fyrstu 86 mínúturnar er BATE Borisov mistókst að sigra Zhodino í síðasta leik dagsins í hvítrússnesku deildinni.

BATE hefur farið illa af stað á nýrri leiktíð og var jafnteflið markalausa í dag afar svekkjandi. Heimamenn sýndu mikla yfirburði stærsta part leiksins og áttu sextán marktilraunir gegn sex.

Pavel Nekhajchik brenndi af vítaspyrnu fyrir BATE í fyrri hálfleik.

BATE er með sjö stig eftir fimm fyrstu umferðir tímabilsins, sem verða að teljast mikil vonbrigði fyrir eitt af stærstu liðum landsins.

Sýnt var beint frá leiknum á YouTube rásinni 'fcbatetv' með 360 gráðu VR tækni.
Athugasemdir
banner
banner
banner