Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
banner
   lau 30. mars 2024 12:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Amorim um Liverpool: Er mjög ánægður hjá Sporting
Mynd: EPA

Ruben Amorim stjóri Sporting er sterklega orðaður við Liverpool þessa dagana en hann er ekki upptekinn af því.


Xabi Alonso var á óskalista Liverpool en hann hefur nú tekið ákvörðun að vera áfram stjóri Leverkusen á næsta tímabili.

Amorim var spurður út í orðróminn eftir sigur liðsins á Estrela í portúgölsku deildinni í gær. Liðið mætir Benfica í seinni undanúrslitaleik liðanna í portúgalska bikarnum á þriðjudaginn en Sporting er með 2-1 forystu í einvíginu.

„Ég er einbeittur á Sporting. Ég er mjög stoltur að vera þjálfari Sporting. Við erum að einbeita okkur að vinna titla. Sjáum til að lokum, ég er með samning og er mjög ánægður hérna," sagði Amorim.

„Það er það mikilvægasta, ekki samningar. Ég er mjög ánægður hérna, aðal atriðið er að vinna Benfica í portúgalska bikarnum."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner