Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
banner
   lau 30. mars 2024 11:38
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið Newcastle og West Ham: Livramento leysir Botman af hólmi
Mynd: Getty Images

Eddie Howe gerir eina breytingu á liði sínu sem tapaði gegn Man City í enska bikarnum í síðasta leiknum fyrir landsleikjahléið.


Tino Livramento kemur inn í liðið fyrir Sven Botman en tímabilinu er lokið hjá honum vegna meiðsla. Harvey Barnes hefur jafnað sig af meiðslum og er á bekknum en Kieran Trippier er enn fjarverandi.

David Moyes gerir einnig eina breytingu frá 1-1 jafntefli gegn Aston Villa.

James Ward-Prowse kemur inn fyrir Edson Alvarez sem er í banni. Mohamed Kudus fór ekki með Gana í landsliðsverkefni vegna meiðsla en hann er klár í slaginn. Maxwel Cornet er á bekknum eftir að hafa misst af síðustu sex leikjum vegna meiðsla.

Newcastle: Dubravka, Livramento, Schar, Lascelles, Burn, Bruno, Longstaff, Willock, Murphy, Isak, Gordon

West Ham: Areola, Coufal, Mavropanos, Zouma, Emerson, Ward-Prowse, Soucek, Bowen, Paqueta, Kudus, Antonio.


Athugasemdir
banner
banner
banner