Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   lau 30. mars 2024 18:56
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Flautumark í Róm
Adam Marusic skoraði eina markið með skalla á lokasekúndunum
Adam Marusic skoraði eina markið með skalla á lokasekúndunum
Mynd: EPA
Lazio 1 - 0 Juventus
1-0 Adam Marusic ('90 )

Lazio vann magnaðan 1-0 sigur á Juventus í Seríu A á Ítalíu í dag, eina markið kom á lokasekúndum leiksins.

Taty Castellanos kom sér í gott færi á 20. mínútu en setti boltann framhjá marki Juventus og þá átti Federico Chiesa fínustu tilraun hinum megin á vellinum undir lok hálfleiks en Christos Mandes varði frá honum.

Það var ekki útlit fyrir að það kæmi sigurmark í þennan leik. Tíminn var að renna út en í síðustu sókn leiksins kom Matteo Guendouzi með laglega fyrirgjöf inn í teiginn og á Adam Marusic sem stangaði boltann í netið.

Flautumark og Lazio nú með 46 stig í 7, sæti en Juventus, sem hefur ekki unnið leik síðan í lok febrúar, er í þriðja æsti með aðeins 59 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner