Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   sun 31. mars 2024 08:00
Brynjar Ingi Erluson
„Rashford virðist ekki vera að njóta fótboltans“
Marcus Rashford
Marcus Rashford
Mynd: EPA
Marcus Rashford, leikmaður Manchester United, var ekki upp á sitt besta í 1-1 jafntefli liðsins gegn Brentford í Lundúnum í gær en Daily Mail gaf honum 4 í einkunn fyrir frammistöðuna.

Þetta er gömul og ný saga hjá Rashford. Hann var stórkostlegur á síaðsta tímabili, en lélegur tímabilið á undan því.

Það er lítill stöðugleiki í framlagi hans en Jamie Redknapp hjá Sky Sports veltir því fyrir sér hvort hann sé yfir höfuð að njóta þess að spila fótbolta.

„Ég bjóst við að þeir kæmu inn í þennan leik í ham. Frammistaðan var dræm og enginn neisti. Fremst á vellinum var Höjlund að reyna að gera eitthvað úr engu allan leikinn. Rashford er leikmaður sem hefur svo mikla hæfileika, meðfædda hæfileika. Hann er með allan pakkann, ótrúlegt vaxtarlag, getur hlaupið, góður að rekja boltann, skjóta og var með 30 mörk á síðasta ári. Ég horfi á þennan leikmann í dag og það virðist bara eins og hann sé ekki að njóta fótboltans,

„Það brýtur í mér hjartað því þeir eru með svo mikið af hæfileikum þarna. Ég vil sjá meira,“
sagði Redknapp.
Athugasemdir
banner
banner