Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 07. mars 2015 11:49
Arnar Geir Halldórsson
Myndband: Sjáðu fyrsta mark Viðars í Kína
Byrjaður að skora í Kína
Byrjaður að skora í Kína
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Selfyssingurinn Viðar Örn Kjartansson var ekki lengi að stimpla sig inn í Kínversku ofurdeildina en hann skoraði eina mark Jiangsu Sainty í 2-1 tapi í dag.

Jiangsu Sainty byrjaði illa og lenti 2-0 undir eftir aðeins 16 mínútna leik. Viðar minnkaði muninn á 39.mínútu en engin mörk voru skoruð í seinni hálfleik.

Viðar og Sölvi Geir Ottesen spiluðu báðir allan leikinn í dag. Næsti lekur liðsins er eftir viku gegn Guizhou Renhe.

Allt að helsta úr leiknum má sjá á myndbandi hér fyrir neðan. Mark Viðars kemur eftir 2 mínútur og 10 sekúndur.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner