Sóknarleikmaðurinn Aron Jóhannsson er að kveðja þýska félagið Werder Bremen. Hann náði aldrei að festa sig í sessi hjá liðinu þar sem hann var mikið á meiðslalistanum.
Aron hefur ekkert náð að spila með Bremen á tímabilinu en á síðustu leiktíð lék hann tólf leiki í þýsku deildinni og skoraði í þeim eitt mark.
Aron, sem sló í gegn hjá Fjölni í Grafarvogi á sínum tíma, hefur verið hjá Bremen síðan 2015 þegar hann kom frá AZ Alkmaar.
Hann lék með bandaríkjunum á HM 2014 í Brasilíu.

Ekki er vitað hvað næsta skref Arons verður en hann er 28 ára.
Werder Bremen er í 9. sæti þýsku deildarinnar en Aron verður kvaddur í lokaumferðinni á laugardag þar sem Bremen á leik gegn RB Leipzig.
💬 #Baumann:
— SV Werder Bremen (@werderbremen) May 16, 2019
"Wir werden @aronjo20 am Samstag kurz vor dem Spiel im #Weserstadion verabschieden. Er hatte eine Menge Pech, aber hat sich nie aufgegeben und immer gute Laune. Er hat den Rahmen verdient."#WerderPK #svwrbl
Athugasemdir