Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 20. maí 2019 10:09
Elvar Geir Magnússon
Mikael Egill skaut U17 liði Spal áfram
Mikael Egill Ellertsson.
Mikael Egill Ellertsson.
Mynd: Getty Images
U17 landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson skoraði bæði mörk U17 ára liðs Spal í 2-1 sigri gegn Torino í gær.

Leikurinn var framlengdur en með sigrinum þá komst Spal áfram í úrslitakeppni U17 liða á Ítalíu.

Spal mætir annað hvort Genoa eða Hellas Verona um næstu helgi.

Mikael Egill var með íslenska U17 landsliðinu sem tók þátt í lokakeppni EM í Dublin fyrr í þessum mánuði. Hann skoraði í leikjunum gegn Ungverjalandi og Portúgal.

Leikmaðurinn ungi var seldur frá Fram til Spal sumarið 2018.


Athugasemdir
banner
banner