Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mið 12. júní 2019 22:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Wolves tilbúið að láta Costa fara - Myndi kosta Leeds um 15 milljónir
Mynd: Getty Images
Helder Costa, vængmaður Wolves, hefur verið orðaður við félagaskipti til Leeds í sumar.

Samkvæmt Yorkshire Evening Post er þessi 25 ára Portúgali, sem er þó fæddur í Angóla, til sölu hjá Wolves sem þýðir að Costa gæti gengið í raðir Leeds borgi félagið uppsett verð.

Talið er að Wolves vilji fá um fimmtán milljónir punda fyrir leikmanninn sem heillaði marga með spilamennsku sinni í Championship deildinni fyrir tveimur árum.

Costa spilaði 25 leiki í úrvalsdeildinni á liðinni leiktíð og skoraði eitt mark.
Athugasemdir
banner
banner
banner