Tæpur klukkutími er í það að leikur Íslands og Albaníu hefst í undankeppni EM 2020. Leikurinn er í Elbasan í Albaníu.
Athyglisvert er að glugga í leikskrána hjá Albaníumönnunum fyrir leik. Þar á að vera mynd af íslenska hópnum, en svo er svo sannarlega ekki. Myndina má sjá hér að neðan.
Albanarnir eru í stuði hér fyrir leik, vallarþulurinn þá sérstaklega. Hann er búinn að vera að æfa sig síðustu mínúturnar, hann ætlar að vera með allt á hreinu í kvöld. Í eitt skiptið hérna áðan bauð hann fólk velkomið á leik Albaníu og Írlands í undankeppni EM.
Albanir lentu í því um helgina að vitlaus þjóðsöngur var spilaður fyrir leik liðsins gegn Frakklandi. Þjóðsöngur Andorra var spilaður, en Frakkar báðu síðan Armeni afsökunar. Allt saman hið furðulegasta.
Menn voru því stressaðir hér áðan hvort þjóðsöngurinn sem yrði spilaður fyrir leik væri ekki örugglega réttur þjóðsöngur Íslands. Siggi Dúlla, búningastjóri landsliðsins, var fenginn til að staðfesta það.
Íslenski hópurinn í leikskrá albana fyrir leikinn. Eitt stig fyrir hvert rétt nafn á myndinni. #fotboltinet pic.twitter.com/R1onzR3WZr
— Hafliði Breiðfjörð (@haflidib) September 10, 2019
Athugasemdir