Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fös 11. október 2019 18:38
Magnús Már Einarsson
Breyting hjá Frökkum - Kante ekki með
Icelandair
Kante spilar ekki á Laugardalsvelli í kvöld.
Kante spilar ekki á Laugardalsvelli í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Frakkar hafa gert breytingu á byrjunarliði sínu rétt fyrir leikinn gegn Íslandi í undankeppni EM.

N'Golo Kante, miðjumaður Chelsea, fann fyrir meiðslum í upphitun og getur ekki spilað. Kante hefur verið að glíma við meiðsli og Frank Lampard, stjóri Chelsea, hafði óskað eftir því að hann yrði ekki valinn í franska hópinn.

Moussa Sissoko, miðjumaður Tottenham, kemur inn á miðjuna í hans stað.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum


Athugasemdir
banner
banner
banner