Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fös 11. október 2019 19:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jóhann Berg fór meiddur af velli eftir 13 mínútur
Missir hann af leiknum við Andorra?
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhann Berg Guðmundsson er farinn meiddur af velli hjá Íslandi sem leikur nú við Heimsmeistara Frakklands á Laugardalsvelli.

Jóhann Berg virtist togna aftan í læri. Hann féll í jörðina á 13. mínútu og þurfti á skiptingu að halda.

Inn í hans stað kom Jón Daði Böðvarsson.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.

Jói Berg hefur verið í meiðslavandræðum upp á síðkastið. Hann er nýkominn til baka úr kálfameiðslum sem hafa haldið honum frá keppni síðan í ágúst.

Hann missti af landsleikjunum gegn Albaníu og Moldóvu í síðasta mánuði og afar ólíklegt er að hann verði með gegn Andorra á mánudaginn.


Athugasemdir
banner
banner