Ull/Kisa heimsótti Skeid í norsku B-deildinni um helgina og var 1-0 undir þar til á 89. mínútu.
Þá fengu gestirnir aukaspyrnu af um 25 metra færi og fór enginn annar heldur en markvörður liðsins, Stefan Hagerup, að knettinum.
Hagerup átti vægast sagt magnaða aukaspyrnu og jafnaði þannig leikinn.
Varamaðurinn Vamouti Diomande gerði svo dramatískt sigurmark Ull/Kisa í uppbótartíma.
Down in the Norwegian second division, Ull/Kisa keeper Stefan Hagerup scored the first goal of his career on Sunday.
— Who Ate All The Pies (@waatpies) October 21, 2019
It also happened to be an 89th-min equaliser in a dramatic 2-1 away win over Skeid.pic.twitter.com/L7YyyhJPAK
Athugasemdir