Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 19. mars 2007 17:44
Magnús Már Einarsson
Heimild: Heimasíða KSÍ 
Kolbeinn skoraði bæði í jafntefli hjá U-17
Kolbeinn Sigþórsson skoraði tvö í dag.
Kolbeinn Sigþórsson skoraði tvö í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Kolbeinn Sigþórsson úr HK skoraði bæði mörk U-17 ára landsliðsins þegar það gerði 2-2 jafntefli gegn Norður-Írum í dag í milliriðli fyrir EM 2007.

Kolbeinn skoraði mörkin á tveggja mínútna kafla í fyrri hálfleik og leiddi íslenska liðið í hálfleik, 2-0. Norður Írar skoruðu strax í byrjun seinni hálfleiks og náðu að jafna metin svo síðar í hálfleiknum.

Næsti leikur íslenska liðsins er gegn heimamönnum í Portúgal á miðvikudaginn. Portúgal og Rússland gerðu markalaust jafntefli í hinum leik riðilsins í dag.
Af heimasíðu KSÍ.
Athugasemdir
banner
banner
banner