Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 16. apríl 2007 16:27
Hafliði Breiðfjörð
Þrír leikmenn KA á reynslu hjá Blackburn Rovers
Jóhann vinstra megin og Andri hægra megin eftir leikinn hjá Liverpool.
Jóhann vinstra megin og Andri hægra megin eftir leikinn hjá Liverpool.
Mynd: Fótbolti.net - Stefán
Þrír leikmenn úr þriðja flokki KA munu í lok apríl fara til reynslu hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Blackburn Rovers. Þetta eru þeir Andri Fannar Stefánsson, Jóhann Axel Ingólfsson og Haukur Heiðar Hauksson en þeir tveir fyrstnefndu voru á reynslu hjá Liverpool um páskana.

Andri Fannar er miðjumaður sem hefur átt sæti í byrjunarliði meistaraflokks KA í Lengjubikarnum í ár og hefur í allan vetur æft með U17 ára landsliði Íslands en hann er aðeins 15 ára gamall og verður 16 ára síðar á árinu.

Jóhann Axel er eins og Andri Fannar fæddur árið 1991 en er þó orðinn 16 ára og er varnarmaður eins og Haukur Heiðar einnig. Þeir tveir hafa einnig leikið með meistaraflokki KA en í Powerade mótinu.

Drengirnir þrír fara utan í lok apríl og æfa með Blackburn í nokkra daga. Njósnarar félagsins sáu til þeirra er þeir léku með KA gegn Blackburn í æfingaleik þriðja flokks um páskana og nokkrum dögum síðar er þeir léku með KA á Blackpool mótinu en KA vann það mót.

Njósnarar stórliðs Liverpool sáu einnig til drengjanna í leiknum gegn Blackburn og í kjölfarið var þeim Andra og Jóhanni boðið að leika æfingaleik í Akademíu Liverpool á Skírdag sem var fyrir Blackpool mótið. Leikurinn hafði verið settur sérstaklega upp til að skoða unga leikmenn allstaðar að úr heiminum og Andra og Jóhanni var boðið að slást í þann hóp sem þar var skoðaður.

Andri Fannar lék í rauðum Liverpool búning í leiknum en Jóhann var mótherji hans og lék í gulum varabúningi Liverpool. Drengirnir stóðu sig vel í leiknum og í hálfleik hittu þeir meðal annars Xabi Alonso miðvallarleikmann Liverpool og ræddu við hann. Í kjölfarið af þessum leik fylgdust Liverpool með þeim á Blackpool mótinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner