Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
banner
   fim 04. apríl 2024 08:00
Elvar Geir Magnússon
Stefán Teitur valinn í lið umferðarinnar
Stefán Teitur Þórðarson.
Stefán Teitur Þórðarson.
Mynd: Getty Images
Íslenski landsliðsmiðjumaðurinn Stefán Teitur Þórðarson hefur verið valinn í lið umferðarinnar í dönsku úrvalsdeildinni.

Þessi 25 ára Skagamaður leikur fyrir Silkeborg og skoraði í 2-2 jafntefli gegn AGF um síðustu helgi. Hann er alls með sex mörk í nítján leikjum á tímabilinu.

Silkeborg er í sjötta sæti með 28 stig.

Stefán er á skotskónum um þessar mundir en á dögunum skoraði hann tvennu í 6-1 sigri gegn Fredericia í undanúrslitum danska bikarsins.


Athugasemdir
banner
banner
banner