Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, sem í þessum orðum er að undirbúa sig fyrir leikinn gegn Póllandi sem hefst 16:45, var til viðtals í vikunni. Hún ræddi við Fótbolta.net á hóteli landsliðsins.
Í lok viðtalsins var hún spurð út í frænda sinn Gylfa Þór Sigurðsson sem samdi við Val fyrr í vetur og spilar með liðinu í sumar.
Í lok viðtalsins var hún spurð út í frænda sinn Gylfa Þór Sigurðsson sem samdi við Val fyrr í vetur og spilar með liðinu í sumar.
Lestu um leikinn: Ísland 3 - 0 Pólland
Verða bæði augun límd á Valsleikina í sumar?
„Já, ég er Valsari karlameginn," sagði Karólína og hló.
„Ég er mjög spennt að horfa á hann, en ég bið þjóðina um að gefa honum smá tíma að komast í gang og svo mun hann geita yfir sig," bætti landsliðskonan við.
Gylfi mun á sunnudag spila sinn fyrsta deildarleik á Íslandi þegar Valur fær ÍA í heimsókn.
Athugasemdir