Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   fös 05. apríl 2024 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Selfoss fer sjálfkrafa áfram í Mjólkurbikarnum - Stokkseyri dregur lið sitt úr keppni
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Selfoss átti að spila í fyrstu umferð Mjólkurbikarsins í gær en fer sjálfkrafa áfram í 2. umferð.


Það er vegna þess að andstæðingur liðsins í fyrstu umferðinni, Stokkseyri, dró liðið sitt úr keppni fyrr í vetur og mun ekki taka þátt í Mjólkurbikarnum í ár. Mögulegt er að þeir taki þátt í Íslandsmótinu.

Selfoss mætir annað hvort Kára eða Uppsveitum í 2. umferð. Kári fær Uppsveitir í heimsókn á morgun.

Selfoss leikur í 2. deildinni í sumar eftir að hafa fallið úr Lengjudeidinni síðasta sumar.


Athugasemdir
banner
banner
banner