Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fim 08. ágúst 2019 13:33
Magnús Már Einarsson
Stuðningsmenn Chelsea láta veitingastað David Luiz heyra það
Mynd: Getty Images
Stuðningsmenn Chelsea eru allt annað en ánægðir með að varnarmaðurinn David Luiz sé á leið til Arsenal á átta milljónir punda.

Chelsea er í félagaskiptabanni og getur því ekki fyllt skarð Luiz fyrr en eftir ár.

Stuðningsmenn Chelsea hafa margir tekið reiði sína út með því að gefa veitingastað Luiz lélega einkunn á TripAdvisor. Luiz á ítalska veitingastaðinn Babbo í Mayfair hverfinu í London.

Í dag hafa margir stuðningsmenn Chelsea gefið staðnum einn í einkunn og skáldað upp ljóta hluti um þjónustuna á staðnum.

Með þessu vilja þeir lýsa yfir óánægju sinni með félagaskipti Luiz og vona að veitingareksturinn gangi illa hjá Brasilíumanninum.

Hér að neðan má sjá stuðningsmann Chelsea kýla plakat af Luiz í dag.

Athugasemdir
banner
banner
banner