Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   lau 12. júní 2021 08:15
Fótbolti.net
Gummi Ben, EM og íslenski á X977 í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Benediktsson verður gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Þátturinn er alla laugardaga milli 12 og 14.

Elvar Geir og Tómas Þór eru umsjónarmenn þáttarins og ræða við Gumma Ben um EM alls staðar og landsleik Íslands gegn Póllandi.

Í þættinum verður einnig opinberað hver sé leikmaður fyrsta þriðjungs Pepsi Max-deildarinnar í boði Bose. Fólkið í landinu sá um valið.

Þá verður fjallað um sjöttu umferð Lengjudeildarinnar en fjórir leikir voru á fimmtudagskvöld.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner