Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   mið 23. október 2019 21:32
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu sturlað sigurmark Sabitzer gegn Zenit
Mynd: Getty Images
Marcel Sabitzer skoraði sigurmarkið í 2-1 sigri RB Leipzig gegn Zenti í Meistaradeildinni fyrr í kvöld.

Zenit komst yfir í fyrri hálfleik og lagði Sabitzer upp jöfnunarmarkið í upphafi síðari hálfleiks, tíu mínútum áður en hann skoraði.

Sabitzer fékk fyrirgjöf frá vinstri kanti, tók boltann á kassann og leyfði honum að skoppa fyrir framan sig áður en hann lét vaða.

Hann smellhitti knöttinn sem small í samskeytunum fjær og fór þaðan í netið. Markið er stórbrotið og er hægt að sjá með að smella hér.
Athugasemdir
banner
banner
banner