Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   sun 31. mars 2024 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ætla að gera lokatilraun til að sannfæra Xavi um að vera áfram
Mynd: EPA
Rafa Yuste, varaforseti spænska félagsins Barcelona, segir að félagið ætli að gera heiðarlega lokatilraun til þess að sannfæra Xavi um að halda áfram þjálfun liðsins.

Xavi tilkynnti í síðasta mánuði að þetta yrði hans síðasta tímabil sem þjálfari Börsunga.

Þjálfarinn hefur verið ósáttur við gagnrýni frá fjölmiðlum og stuðningsmönnum. Hann ákvað því að hætta með liðið en stjórn Barcelona ætlar ekki að gefa upp von á því að halda honum.

„Ég vona og óska þess að hann haldi áfram hér því við erum að tala um langtíma verkefni með honum, ekki eitt tímabil eða tvö. Við ætlum að reyna að sannfæra Xavi og svo er þetta undir honum komið,“ sagði Yuste við spænska fjölmiðla.

Xavi hefur margoft verið spurður að því á blaðamannafundum hvort hann sé að íhuga að halda áfram en alltaf hefur hann hafnað því. Það verður því fróðlegt að sjá hvort Barcelona geti sannfært hann um að halda áfram
Athugasemdir
banner
banner
banner