Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   sun 31. mars 2024 12:37
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kristian skoraði í kærkomnum sigri Ajax
Mynd: Getty Images

Kristian Nökkvi Hlynsson skoraði í kærkomnum sigri Ajax á Zwolle í dag.


Hann spilaði allan leikinn en hann kom liðinu yfir snemma leiks þegar hann fékk laglega sendingu inn fyrir vörn Zwolle og hann kláraði færið snyrtilega.

Ajax var með 2-0 forystu í hálfleik en Zwolle minnkaði muninn áður en þriðja mark Ajax kom en þar við sat. Chuba Akpom skoraði tvö mörk fyrir Ajax.

Með þessum sigri lauk fjögurra leikja hrinu án sigurs en liðið er í 5. sæti deildarinnar með 44 stig, átta stigum á eftir AZ Alkmaar sem er í sætinu fyrir ofan.


Athugasemdir
banner
banner
banner