
Stefán Hirst birti þessa mynd úr klefanum hjá KV þar sem menn voru að undirbúa sig fyrir leik gegn Víkingi.
20:00 FH 3 - 2 Fylkir (eftir framlengingu)
0-1 Gylfi Einarsson ('18)
1-1 Pétur Viðarsson ('25)
1-2 Albert Brynjar Ingason ('34)
2-2 Hannes Þ. Sigurðsson (67')
3-2 Freyr Bjarnason ('86)
0-1 Gylfi Einarsson ('18)
1-1 Pétur Viðarsson ('25)
1-2 Albert Brynjar Ingason ('34)
2-2 Hannes Þ. Sigurðsson (67')
3-2 Freyr Bjarnason ('86)
19:15 KV 0 - 2 Víkingur (leik lokið)
0-1 Kemar Roofe ('77)
0-2 Marteinn Briem ('86)
19:15 Þór 5 - 0 Leiknir F. (leik lokið)
1-0 Ottó Hólm Reynisson ('25)
2-0 David Disztl ('36)
3-0 Gunnar Már Guðmundsson
4-0 Gísli Páll Helgason ('68)
5-0 David Disztl ('86)
19:15 Breiðablik 2 - 1 Völsungur (leik lokið)
1-0 Rafn Andri Haraldsson ('7)
2-0 Viktor Unnar Illugason ('27)
2-1 Hrannar Björn Steingrímsson ('76)
22:26 LEIK LOKIÐ í Kaplakrikanum. 120 mínútur þurftu til að fá niðurstöðu. Bikarmeistarar FH eru komnir áfram í 16-liða úrslitin. Segjum þessari textalýsingu lokið í dag. Þakka þeim sem fylgdust með! Umfjöllun og viðtöl koma inn á síðuna innan tíðar.
22:22 Kappið er að bera fegurðina ofurliði hjá Fylkismönnum þessa stundina. Árbæingar ákafir í að reyna að jafna metin. Ef það tekst ekki þá er liðið einfaldlega úr leik í þessari keppni. Fjórar mínútur eftir. Tíminn er að renna út!
22:19 Sjö mínútur eftir af framlengingunni. Fylkismenn ekki að ná að ógna marki FH. Þeir hafa nú breytt leikstíl sínum og spila með aðeins þrjá menn í vörninni.
Twitter: Arnar Smárason, leikmaður KV
Mæli með Valitor mörkunum. Serba djöfull skallaði mig. #rauttspjald #Maggifelga #MOM
Twitter: Guðmundur Óli Steingrímsson, leikmaður KA
bogalistin hefur ekki verið minn besti vinur í síðustu leikjum, hlakka til að hætta að spila í boganum #boginn #gervigras
Twitter: Skúli Jón Friðgeirsson, leikmaður KR
"hversu langt bann fékk Fjalar, var það ekki bara 90 mínútur" - logi ólafs #fyndnastimaðurlandsins #fálogameðsvalaaðlýsanba #toppteymi
22:14 Það er farið að rökkva vel í Kaplakrika.
22:12 Seinni hluti framlengingar hafinn. Komnar fréttir af því að Viktor Örn hafi meiðst aftan í læri og því þurft að yfirgefa völlinn. Vonum að þessi meiðsli geri það ekki að verkum að hann missi af einhverjum leikjum.
22:10 Fyrri hálfleik framlengingar lokið. FH-ingar 3-2 yfir. Það er ekki margt í spilunum sem bendir til þess að Fylkir muni ná að jafna leikinn... en það þarf oft lítið til að skora.
Twitter: Ingibjörg Hinriksdóttir
Endalaus grís í Krikanum, hvenær lýkur þessu eiginlega
22:03 Atli Viðar Björnsson slapp í gegn og hefði getað klárað þetta. Ísak kom út á móti og gerði mjög vel. Greinilega efnilegur markvörður þarna á ferð.
22:01 MARK! FH 3-2 Fylkir
Freyr Bjarnason skoraði með skalla. Stangaði boltann í netið eftir aukaspyrnu sem Guðmundur Sævarsson tók. Nú þurfa Fylkismenn að blása til sóknar. Í fyrsta sinn sem FH er með forystu í leiknum en Fimleikafélagið er handhafi bikarmeistaratitilsins.
21:58 Atli Guðnason með skot af löngu færi sem Ísak í Fylkismarkinu varði með tilþrifum í horn. Skipting hjá FH. Inn er kominn Tommy Nielsen fyrir Viktor Örn Guðmundsson sem er líklega meiddur. Pabbi Viktors er í stúkunni, Guðmundur Hilmarsson íþróttablaðamaður Morgunblaðsins.
21:55 Framlenging hafin. FH-ingar sækja í átt að KFC í Hafnarfirði en Fylkismenn í átt að Árbænum.
Twitter: Magnús Sigurbjörnsson
Menn almennt ósáttir við að það er framlengt hér. Svo drullukalt. ÁFRAM FYLKIR #fotbolti
21:50 Það hefur verið flautað til loks venjulegs leiktíma hér í Kaplakrika. Við fáum þennan leik í framlengingu. Fyrir þá sem hafa aldrei séð svoleiðis þá er framlengt um 2x15 mínútur. Ef enn verður jafnt eftir þann tíma ráðast úrslitin í vítaspyrnukeppni. FH-ingar voru talsvert sterkara liðið í seinni hálfleik venjulegs leiktíma. Það má búast við því að það verði hart barist í framlengingunni.
21:46 90 mín: Kristinn Jakobsson fjórði dómari gefur til kynna að þrjár mínútur séu í uppbótartíma. Staðan enn 2-2.
21:41 85 mín: Allt bendir til þess að leikurinn fari í framlengingu. Ekki mikið í gangi þessa stundina.
21:37 82 mín: Bjarki Gunnlaugsson kemur inn sem varamaður fyrir Björn Daníel Sverrisson.
Twitter: Aron Bjarki Jósepsson, leikmaður KR
Völsungar geta verið stoltir eftir 2-1 tap gegn Blikum! Stóðu vel í íslandsmeisturunum #hefðuunniðáHúsavík #Völsungur #fótbolti
21:29 Kjartan Ágúst Breiðdal inn fyrir Tómas Joð Þorsteinsson hjá Fylki. Tómas á gulu spjaldi. Hólmar Örn Rúnarsson átti hörkuskot hér rétt áðan en boltinn fór naumlega yfir markið.
21:23 MARK! FH 2-2 Fylkir
Hannes Þ. Sigurðsson var að jafna fyrir FH-inga! Viktor Örn Guðmundsson með lága fyrirgjöf. Hannes stakk sér framfyrir varnarmann Fylkis og potaði boltanum í netið. Rúmar tuttugu mínútur eftir af leiknum. Ef ekkert breytist verður framlengt.
21:22 Bara úrvalsdeildarlið að komast áfram úr leikjum kvöldsins. Nú er bara einn leikur eftir og það er viðureign FH og Fylkis. Við fylgjum honum í þessari textalýsingu til loka. Atli Viðar Björnsson var að koma inn sem varamaður fyrir Gunnar Kristjánsson.
21:21 Staðfest úrslit úr vesturbænum. KV 0-2 Víkingur.
21:19 Sókn FH-inga að þyngjast. 63 mínútur á klukkunni í Kaplakrikanum. Rétt áðan áttu FH-inga dauðafæri. Guðmundur Sævarsson með fyrirgjöf en Hannes Þ. Sigurðsson hársbreidd frá því að ná til boltans.
21:12 Staðfest úrslit frá Kópavogsvelli. Breiðablik vann Völsung 2-1. Hörður Snævar Jónsson er í Kópavogi og kemur með umfjöllun og viðtöl innan skamms.
Twitter: Andri Yrkill Valsson
Þægilegur 5:0 sigur Þórsara staðreynd. Leiknismenn sáu aldrei til sólar hérna innandyra í Boganum #fotbolti
21:08 MARK! Þór 5-0 Leiknir F.
David Disztl að skora sitt annað mark og fimmta mark Þórsara gegn Leikni Fáskrúðsfirði. Nú má vitna í setningu úr stuðningsmannalagi Þórs: "Aðeins eitt lið á vellinum."
21:05 MARK! KV 0-2 Víkingur
Marteinn Briem að bæta við mark fyrir Víkinga þegar fjórar mínútur eru eftir af venjulegum leiktíma. Hann skoraði eftir laglegan undirbúning Kemar Roofe sem skoraði fyrra markið.
21:03 Seinni hálfleikur var að hefjast í Krikanum. Blaðamenn gráta kaffileysið í blaðamannastúkunni. Engar breytingar á liðunum í hálfleik.
20:57 MARK! KV 0-1 Víkingur R.
West Brom maðurinn Kemar Roofe hefur skorað fyrir Víkinga á 77. mínútu. Þetta var farið að líta illa út fyrir Víkinga en Roofe með markið.
20:48 MARK! Þór 4-0 Leiknir F.
Bakvörðurinn Gísli Páll Helgason að reka enn einn naglann í kistu Leiknismanna frá Fáskrúðsfirði.
20:46 MARK! Breiðablik 2-1 Völsungur
Húsvíkingar hafa minnkað muninn í Kópavoginum. Það var Hrannar Björn Steingrímsson sem skoraði það mark. Fáum við alvöru endurkomu hjá Völsungum?
20:44 Um 15 mínútur eftir í leik KV og Víkings og staðan enn markalaus!
Twitter: Jón Kári Eldon
Ennþá markalaust á KV-Park. Gaman að þessu. KV menn berjast eins og ljón. #fotbolti
20:40 Atli Guðnason með ágætis skottilraun en Ísak Björgvin varði í hornspyrnu. Engin hætta skapaðist úr hornspyrnunni.
20:36 Jóhann Þórhallsson fer meiddur af velli hjá Fylkismönnum. Andri Már Hermannsson kemur inn í hans stað.
20:35 Hafnfirðingar hafa ekki náð að láta reyna nægilega mikið á hinn óreynda markvörð Fylkismanna, Ísak Björgvin Gylfason.
20:33 MARK! FH 1-2 Fylkir
Eftir rólega byrjun er komið mikið fjör í Kaplakrikanum. Albert Brynjar Ingason var að koma Fylki aftur yfir eftir mjög góða sókn. Ingimundur Níels Óskarsson skallaði boltann til Alberts í teignum og hann setti boltann örugglega í hornið, óverjandi fyrir Gunnleif Gunnleifsson.
20:30 MARK! Þór 3-0 Leiknir F.
Gunnar Már Guðmundsson hefur skorað þriðja mark Þórsara. Fyrsta mark hans fyrir Þór.
Twitter: Ingvar Björn
Hann er svo mikið krútt í markinu hjá Fylki. Kunna menn við að skjóta á svona dúllur? #meirasegjanafniðersætt
20:23 MARK! FH 1-1 Fylkir
FH-ingar jafna eftir hornspyrnu. Björn Daníel Sverrisson tók hornið og boltinn lenti á fjærstönginni þar sem Pétur Viðarsson var einn og óvaldaður og skoraði af stuttu færi. Þarna sváfu Fylkismenn á verðinum. Pétur er ekki maður sem á að skilja eftir í föstum leikatriðum.
20:17 MARK! FH 0-1 Fylkir
Gylfi Einarsson hefur komið Árbæingum yfir í Kaplakrikanum. Hann skoraði með skalla eftir horn. Boltinn fór af Frey Bjarnasyni áður en hann barst til Gylfa.
Twitter: Skúli Jón Friðgeirsson, leikmaður KR
Steindautt á kv park í ht víkingar hafa ekki átt færi! Super Bob stelur þessu í lokin #ovænt
20:11 Magnús Gylfason er staddur í blaðamannastúkunni og Logi Ólafsson sem lýsir leiknum í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport stenst ekki mátið og kemur með skot á Magga í útsendingu. Menn léttir. Ekkert markvert gerst í þessum leik á fyrstu þrettán mínútunum.
20:07 Athyglisverðasta staðan í kvöld er klárlega í leik KV og Víkinga þar sem markalaust er í hálfleik.
Twitter: Henry Birgir Gunnarsson
skandall að Völlarar leiði ekki í Kóp. Gáfu mark og klúðruðu víti og dauðafæri.
20:04 FH-ingar byrja vel þessar fyrstu mínútur í Kaplakrika þar sem undirritaður er staddur. Örvar Arnarsson er mér við hlið en hann skrifar umfjöllun og tekur viðtöl eftir leik. Örvar féll einmitt úr keppni í Valitor-bikarnum í gær þegar Kjalnesingar biðu lægri hlut fyrir ÍBV.
MARK! Þór 2-0 Leiknir F.
David Dizstl búinn að koma Þór tveimur mörkum yfir. Stefnir í fremur auðveldan dag á skrifstofu Þórsara.
Twitter: Stefán Pálsson
Maettur i krikann skita kuldi en allt fyrir boltann #fotbolti #emilbrodirihop #afrmfh Sjá mynd
19:57 Þrjár mínútur í leik hér í Krikanum og því miður eru fáir áhorfendur mættir. Veðrið setur strik í reikninginn. Þeir sem eru mættir eru allavega vel klæddir sem er gott. Kokkurinn Magnús Þórisson dæmir þennan leik í kvöld.
19:56 Minnum fólk á að nota hashtagið #fotbolti á Twitter. Valdar færslur eru birtar í textalýsingunni.
Twitter: Jón Kári Eldon
Ekki mikið í gangi á KV-Park. Víkingar miklu meira með boltann, en ekki að skapa sér neitt af viti. KV standa sig bara nokkuð vel #fotbolti
19:48 Gunnar Sigurður Jósteinsson fyrirliði Völsungs að klúðra vítaspyrnu. Guðmundur Kristjánsson var dæmdur brotlegur. Gunnar fór á punktinn en Ingvar Kale varði spyrnu hans. Enn 2-0 fyrir Blika.
19:46 MARK! Þór - Leiknir F.
Það er komið mark á Akureyri. Ottó Hólm Reynisson hefur komið Þór yfir gegn 3. deildarliðinu frá Fáskrúðsfirði.
19:43 Á Akureyri eru Þórsarar með einstefnu að marki Leiknis Fáskrúðsfirði. Enn hafa engar fréttir borist úr Vesturbænum... nema að veðrið sé vont!
19:42 MARK! Breiðablik 2-0 Völsungur
Blikar virðast ekki vera í neinum vandræðum með Húsvíkinga. Viktor Unnar Illugason var að bæta við marki á Kópavogsvelli. Hann fékk sendingu innfyrir frá Rafni Andra og kláraði vel.
19:40 Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari er mættur í Kaplakrikann þar sem 20 mínútur eru í leik FH og Fylkis. Hann er í glæsilegri KSÍ-úlpu. Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylkis, er gríðarkátur og hitar upp með varamönnum Fylkis.
Twitter: Andri Guðlaugsson
Bikarævintýri Hattar búið, greinilegt að Kef standa ekki í vanmati, Höldum áfram að vinna okkur upp deildir núna ÁFRAM #Hottur #fótbolti
19:33 Hér má sjá byrjunarliðin. Hinn ungi Ísak Björgvin Gylfason er í marki Fylkis þar sem Fjalar Þorgeirsson er í leikbanni eftir rauða spjaldið gegn Blikum. Þá er Bjarni Þórður Halldórsson meiddur.
Byrjunarlið FH: Gunnleifur Gunnleifsson (m), Gunnar Kristjánsson, Freyr Bjarnason, Pétur Viðarsson, Björn Daníel Sverrisson, Matthías Vilhjálmsson (f), Atli Guðnason, Guðmundur Sævarsson, Hólmar Örn Rúnarsson, Viktor Örn Guðmundsson, Hannes Þ. Sigurðsson
Byrjunarlið Fylkis: Ísak Björgvin Gylfason (m), Kristján Valdimarsson, Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Þórir Hannesson, Ingimundur Níels Óskarsson, Andrés Már Jóhannesson, Jóhann Þórhallsson, Gylfi Einarsson (f), Albert Brynjar Ingason, Tómas Þorsteinsson, Andri Þór Jónsson
19:31 Byrjunarliðin í aðalleik okkar í kvöld, FH - Fylki, eru væntanleg hingað innan skamms. Athygli vekur að Albert Brynjar Ingason er í byrjunarliði Fylkis en talið var að hann myndi missa af þessum leik vegna meiðsla.
19:24 MARK! Breiðablik 1-0 Völsungur
Rafn Andri Haraldsson hefur komið Blikum yfir gegn Völsungi. Kjartan markvörður Völsungs missti boltann eftir hornspyrnu, boltinn barst á Rafn Andra sem átti ekki í vandræðum með að skora. Áður áttu Blikar skot í slá. Það er vonskuveður í Kópavoginum.
19:23 Leikirnir þrír sem hófust 19:15 eru allir farnir af stað.
19:20 MARK! Höttur 0-5 Keflavík
Leik er lokið á Egilsstöðum. Keflavík með öruggan 5-0 útisigur. Hattarmenn máttu síns lítils einum færri gegn Keflvíkingum. Magnús Þórir Matthíasson með síðasta markið eftir að hafa sloppið einn í gegn.
19:15 MÖRK! Höttur 0-4 Keflavík
Á meðan ég brunaði í Hafnarfjörðinn þá bættu Keflvíkingar við tveimur mörkum. Fyrst skoraði Adam Larsson með skalla eftir hornspyrnu og þremur mínútum síðar skoraði Jóhann B. Guðmundsson með skot í teignum.
Twitter: Jónas Ýmir Jónasson
hvasst i krikanum og blautt en FH Radio er mætt a svæðið #fotbolti Sjá mynd
18:46 MARK! Höttur 0-2 Keflavík
Bikardraumarnir brostnir hjá Hattarmönnum. Einum manni fleiri hafa Keflvíkingar bætt við marki. Brynjar Örn Guðmundsson með laglega rispu, var vinstra megin og lék sjálfur í átt að teignum áður en hann lét vaða. Bang og mark.
Twitter: Friðrik Dór tónlistarmaður
Aðstoðaði HG í gær við að greina leik Fylkis, þetta steinliggur. FH sigur í kvöld @bjornsverris m 2 mörk. #Risinnaðrankaviðsér
18:32 Það er rautt spjald strax í upphafi seinni hálfleiks á Egilsstöðum. Friðrik Ingi Þráinsson leikmaður heimamanna fékk brottvísun fyrir hættulega tæklingu tíu sekúndum eftir að seinni hálfleikur hafði verið flautaður á!
18:30 Þórsarar eru að hvíla einhverja leikmenn í leik sínum gegn Leikni Fáskrúðsfirði. Björn Hákon Sveinsson fær tækifæri í markinu. Smelltu hér til að sjá skýrsluna úr þeim leik.
18:28 Víkingar eru ekki mikið að hvíla menn fyrir leikinn gegn KV í kvöld enda vita þeir að von er á baráttuglöðu Vesturbæjarliði.
Byrjunarlið Víkings: Magnús Þormar (m), Mark Richard Rutgers (f), Halldór Smári Sigurðsson, Þorvaldur Sveinn Sveinsson, Kjartan Dige Baldursson, Tómas Guðmundsson, Marteinn Briem, Milos Milojevic, Kemar Roofe, Cameron Gayle, Björgólfur Takefusa.
18:18 Það er 0-1 í hálfleik á Egilsstöðum en hér að neðan má sjá byrjunarliðin í viðureign Breiðabliks og Völsungs sem hefst 19:15 á Kópavogsvelli. Stuðningsmenn Völsungs eru að hita upp á Spot Kópavogi. Kári Ársælsson er aftur kominn í byrjunarlið Blika með bandið góða. Kristinn Steindórsson og Finnur Orri Margeirsson eru hvíldir. Marko Pavlov fær tækifæri í byrjunarliðinu.
Byrjunarlið Breiðabliks: Ingvar Þór Kale (m), Elfar Freyr Helgason, Kári Ársælsson (f), Viktor Unnar Illugason, Haukur Baldvinsson, Rafn Andri Haraldsson, Olgeir Sigurgeirsson, Guðmundur Kristjánsson, Kristinn Jónsson, Arnór Sveinn Aðalsteinsson, Marko Pavlov.
Byrjunarlið Völsungs: Kjartan Páll Þórarinsson (m), Bjarki Baldvinsson, Ármann Örn Gunnlaugsson, Gunnar Sigurður Jósteinsson (f), Hrannar Björn Steingrímsson, Haukur Hinriksson, Elfar Árni Aðalsteinsson, Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, Stefán Jón Sigurgeirsson, Arnþór Hermannsson, Jónas Halldór Friðriksson.
18:14 MARK! Höttur 0-1 Keflavík
Haraldur Freyr Guðmundsson, fyrirliði Keflavíkur, hefur skorað fyrsta mark leiksins á Egilsstöðum. Hann skoraði með skalla eftir hornspyrnu.
18:13 Páll Viðar Gíslason, þjálfari Þórs, er í viðtali við heimasíðu Þórsara, thorsport.is, fyrir leik liðsins gegn 3. deildarliðinu Leikni F. Hægt er að sjá viðtalið neðst í þessari textalýsingu.
18:05 Bæði lið hafa fengið færi til að skora fyrir austan en markmenn beggja liða búnir að verja mjög vel. Ómar Jóhannsson er að sjálfsögðu í marki Keflavíkur en hjá Val er Ásgeir Þór Magnússon í markinu, strákur sem spilar með Hetti á lánssamningi frá Val.
17:58 Enn markalaust í leik Hattar og Keflavíkur. Gestirnir mun meira með boltann en heimamenn hafa varist vel hingað til.
Twitter: Jóhann Laxdal leikmaður Stjörnunnar
arnar már björgvins (Blómið) mun skora í kvöld, hef trú á honum #fotbolti
17:49 Tvö lið úr 3. deild eru enn með í keppninni og verða í eldlínunni í kvöld. Bæði leika þau gegn liðum úr Pepsi-deildinni. Vesturbæjarliðið KV fær Víking Reykjavík í heimsókn og á sama tíma leikur Leiknir Fáskrúðsfirði við Þór Akureyri í Boganum.
17:46 Spennandi verður að sjá hvernig leikur Breiðabliks og Völsungs fer. Húsavíkurliðið var víst án varabúninga þegar dregið var í þessa umferð en hefur pantað sér varasett. Það var þó óvíst í morgun hvort búningarnir yrðu tilbúnir í leikinn. Völsungur leikur í 2. deild og tapaði mjög óvænt fyrir ÍH um síðustu helgi. Ljóst er að Blikar eru með talsvert betra lið en ÍH en í bikarnum getur allt gerst.
Twitter: Jón Páll Pálmason
maggi med storbrotna markvorslu ! Hottur betri,storsokn
17:40 Tveir leikir í gær fóru í framlengingu en enginn í vítaspyrnukeppni. Aðalleikur okkar í kvöld er viðureign FH og Fylkis en hann hefst síðar en hinir leikirnir, klukkan 20:00 nánar til tekið. Ég skelli mér í Kaplakrikann á eftir og stýri textalýsingunni þaðan.
17:38 Það verður dregið í 16-liða úrslit keppninnar á föstudaginn. Hamar úr Hveragerði varð fyrsta liðið til að komast í pottinn á þriðjudag. Í gær voru það svo ÍBV, Valur, KR, Fram, Fjölnir, HK, Haukar, Grindavík, Þróttur og BÍ/Bolungarvík sem bættust í pottinn
17:36 Leikurinn er hafinn á gervigrasvellinum við Egilsstaði.
17:16 Minnum fólk sem skrifar um bikarleikina á Twitter að nota hashtagið #fótbolti. Valdar færslur verða birtar hér í textalýsingunni.
Twitter: Oddur Guðmundsson
Ætla gerast það djarfur að spá KV, Völsung, Fylki og Leikni F. áfram í Valitorbikarnum í kvöld! #óvænt #sleggja
17:13 Willum er ekkert að vanmeta 2. deildarlið Hattar og teflir fram sínu sterkasta í kvöld. Dómari leiksins er Vilhjálmur Alvar Þórarinsson.
Byrjunarlið Hattar: Ásgeir Þór Magnússon (m), Anton Ástvaldsson, Elmar Bragi Einarsson, Óttar Steinn Magnússon (f), Elvar Þór Ægisson, Sigurður Donys Sigurðsson, Ragnar Pétursson, Stefán Þór Eyjólfsson, Garðar Már Grétarsson, Friðrik Ingi Þráinsson, Kristófer Örn Kristjánsson.
Byrjunarlið Keflavíkur: Ómar Jóhannsson (m), Adam Larsson, Haraldur Freyr Guðmundsson (f), Goran Jovanovski, Einar Orri Einarsson, Jóhann Birnir Guðmundsson, Andri Steinn Birgisson, Guðmundur Steinarsson, Magnús Sverrir Þorsteinsson, Brynjar Örn Guðmundsson, Magnús Þórir Matthíasson
17:08 Það er blíðskaparveður á Egilsstöðum samkvæmt honum Gumma sem er okkar maður þar, gola, 7 stiga hiti og dass af snjó í stúkunni. Annars allt til fyrirmyndar!
17:05 Komið þið sæl og blessuð og velkomin í þessa textalýsingu Fótbolta.net frá þeim leikjum sem eftir eru í 32-liða úrslitum Valitor-bikarsins.
Það var engin óvænt niðurstaða í leikjunum í gær en ég hef á tilfinningunni að við fáum allavega ein óvænt úrslit í kvöld! Ég vona það allavega. Klukkan 17:30 mætast Höttur og Keflavík á Egilsstöðum. Þrír leikir hefjast 19:15 og svo klukkan 20 er FH - Fylkir í Kaplakrikanum. Sá leikur er seinna en hinir vegna beinnar útsendingar á Stöð 2 Sport.
19:15 KV - Víkingur (KR-völlur)
19:15 Þór - Leiknir F. (Boginn)
19:15 Breiðablik - Völsungur (Kópavogsvöllur)
20:00 FH - Fylkir (Kaplakrikavöllur)