Höjlund gæti verið lánaður til Inter - Tveir sóknarmenn orðaðir við Man Utd - Wirtz með samkomulag við Liverpool - City færist nær Reijnders
   mið 02. maí 2012 11:38
Magnús Már Einarsson
Grindvíkingar að semja við varnarmann
Grindvíkingar eru að ganga frá samningum við varnarmanninn Steven Old frá Nýja-Sjálandi. Steven kom til Íslands í fyrradag og hann spilaði með Grindvíkingum í 1-0 sigri á Víkingi R. í æfingaleik í gær.

,,Ég hef áhuga á að reyna að klófesta hann og það er á réttri leið," sagði Guðjón Þórðarson þjálfari Grindvíkinga við Fótbolta.net í dag.

Í síðustu viku kræktu Grindvíkingar í Gavin Morrison og Jordan Edridge og Guðjón býst við að Steven Old verði síðasti leikmaðurinn sem kemur til félagsins fyrir mót.

,,Ég hugsa það að þetta verði síðasta púslið nema það komi eitthvað óvænt upp," bætti Guðjón við.

Steven er 26 ára gamall en hann lék með Kilmarnock í skosku úrvalsdeildinni frá 2009-2011 eftir að hafa áður spilað í Ástralíu. Í vetur var hann á mála hjá Basingstoke Town í ensku utandeildinni.

Steven hefur leikið 17 landsleiki með Ný-Sjálendingum en hann var síðast í hópnum gegn Mexíkó í mars árið 2010 þegar hann kom inn fyrir Ryan Nelsen varnarmann Tottenham sem var meiddur.
Athugasemdir
banner
banner