Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   sun 12. ágúst 2018 13:21
Elvar Geir Magnússon
Vieira staðfestir að Balotelli vilji fara
Þess má geta að Mario Balotelli á 28 ára afmæli í dag! Hann fær hamingjuóskir frá Fótbolta.net.
Þess má geta að Mario Balotelli á 28 ára afmæli í dag! Hann fær hamingjuóskir frá Fótbolta.net.
Mynd: Getty Images
Mario Balotelli var ekki í leikmannahópi Nice þegar liðið tapaði 0-1 fyrir Reims í fyrstu umferð frönsku deildarinnar.

Patrick Vieira, stjóri Nice, viðurkenndi í viðtali eftir leikinn að Balotelli vill fara frá félaginu.

Ítalski sóknarmaðurinn skrópaði á æfingar á undirbúningstímabilinu þar sem hann vildi þrýsta á sölu til Marseille.

„Leikmaðurinn vill fara svo það er ólíklegt að hann verði hérna áfram. Við viljum hafa leikmenn sem þrá að ná árangri með liðinu. Þetta er erfið og flókin staða svo félagið mun hjálpa honum að yfirgefa okkur," sagði Vieira.

Balotelli er fáanlegur fyrir 10 milljónir evra samkvæmt klásúlu og hefur verið orðaður við Marseille og endurkomu í ítölsku A-deildina. Parma hafði áhuga á honum en dró sig til baka þar sem launakröfur Balotelli eru of háar fyrir félagið.
Athugasemdir
banner
banner
banner