Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 06. desember 2018 23:12
Elvar Geir Magnússon
FH yfir í Nike - „Fyrir okkur er þetta risamál"
Jón Jónsson og fjölskylda fóru með í Nike!
Jón Jónsson og fjölskylda fóru með í Nike!
Mynd: Instagram
Fyrir nokkru fór að kvissast út að FH myndi spila í Nike búningum á næsta ári og í gær var það formlega opinberað með miklum veisluhöldum í Kaplakrika.

Miðvörðurinn Pétur Viðarsson grillaði pylsur og Jón Jónsson og Friðrik Dór héldu öllum í stuði áður en leikmenn meistaraflokka komu fram í nýjum Nike búningunum liðsins.

Með skiptunum yfir í Nike lýkur 27 ára samstarfi FH og Adidas en ekkert lið hefur leikið jafn lengi samfleytt í búningum frá sama framleiðandanum.

„Fyrir okkur sem erum FH-ingar er þetta risamál," segir Friðrik Dór.

Af viðbrögðum FH-inga að dæma í meðfylgjandi myndbandi hefur nýji búningurinn tekist vel til.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner