banner
   sun 21. apríl 2019 14:26
Arnar Helgi Magnússon
England: Everton niðurlægði Man Utd - Gylfi stórkostlegur
Everton 4 - 0 Manchester Utd
1-0 Richarlison ('13 )
2-0 Gylfi Sigurdsson ('28 )
3-0 Lucas Digne ('56 )
4-0 Theo Walcott ('64 )

Everton gjörsamlega valtaði yfir Manchester United í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Gylfi Þór Sigurðsson var frábær í liði Everton, skoraði mark og lagði upp annað.

Niðurlægingin hófst á þrettándu mínútu þegar Richarlison kom liðinu yfir eftir undirbúning frá Lucas Digne og Dominic Calwert-Lewin.

Gylfi Sigurðsson bætti öðru marki Everton við eftir tæplega hálftíma leik með geggjuðu skoti langt fyrir utan teig sem að David De Gea réði ekkert við. 2-0 í hálfleik, Everton í vil.

Ole Gunnar Solskjær gerði tvöfalda breytingu í hálfleik þegar að hann tók Phil Jones og Fred útaf og setti inn þá Ashley Young og Scott McTominay. Þeir komust aldrei í takt við leikinn, ekki frekar en aðrir leikmenn Manchester United.

Lucas Digne skoraði þriðja mark Everton á 56. mínútu með skoti fyrir utan teig. De Gea sá boltann seint og reyndi ekki einu sinni að fara í hann.

Theo Walcott rak síðasta naglann í kistu Manchester United á 64. mínútu þegar að hann setti boltann snyrtilega framhjá David De Gea eftir sendingu frá Gylfa Þór.

Hreint út sagt hræðileg frammistaða Manchester United í dag og ljóst að liðið þarf að breyta ansi miklu fyrir leikinn gegn Manchester City í vikunni.

Það verður þó ekkert tekið af Everton liðinu sem að vildi sigurinn miklu meira í dag.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 8 7 0 1 20 9 +11 21
2 Arsenal 8 7 0 1 13 5 +8 21
3 Brighton 8 5 1 2 23 7 +16 16
4 Liverpool 8 4 3 1 11 8 +3 15
5 Chelsea 8 4 1 3 17 15 +2 13
6 Brentford 8 2 5 1 14 9 +5 11
7 Leeds 8 2 5 1 9 6 +3 11
8 Newcastle 8 3 2 3 12 14 -2 11
9 Aston Villa 8 3 2 3 9 12 -3 11
10 Hull City 8 2 4 2 9 8 +1 10
11 Everton 8 2 4 2 8 9 -1 10
12 Ipswich Town 8 3 1 4 12 16 -4 10
13 Bournemouth 8 2 3 3 12 13 -1 9
14 Tottenham 8 2 3 3 8 10 -2 9
15 Fulham 8 2 2 4 8 10 -2 8
16 Man Utd 8 1 4 3 10 13 -3 7
17 Crystal Palace 8 2 1 5 9 19 -10 7
18 Nott. Forest 8 1 3 4 6 10 -4 6
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Coventry 8 2 0 6 6 15 -9 6
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
20 Sunderland 8 1 2 5 6 14 -8 5
Slapp
banner
banner