Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 14. ágúst 2019 13:11
Elvar Geir Magnússon
Helgi og Þorvaldur dæma undanúrslitaleikina
Helgi Mikael (fyrir miðju) dæmir leikinn í kvöld.
Helgi Mikael (fyrir miðju) dæmir leikinn í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Undanúrslitaleikir Mjólkurbikars karla fara fram í kvöld og á morgun. Í kvöld leikur FH gegn KR í Kaplakrika en leikurinn hefst klukkan 18:00.

Helgi Mikael Jónasson dæmir í Krikanum en Gylfi Már Sigurðsson og Bryngeir Valdimarsson verða aðstoðardómarar. Egill Arnar Sigurþórsson verður fjórði dómari.

Annað kvöld mun Víkingur leika gegn Breiðabliki á heimavelli hamingjunnar í Fossvogi. Sá leikur hefst 19:15.

Þorvaldur Árnason dæmir þann leik en Oddur Helgi Guðmundsson og Andri Vigfússon verða aðstoðardómarar. Jóhann Ingi Jónsson verður fjórði dómari.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner