Liverpool og Newcastle mætast á morgun í ensku úrvalsdeildinni, leikurinn verður klukkan 11:30.
Liverpool hefur hafið tímabilið vel og er með fullt hús stiga að loknum fjórum umferðum. Steve Bruce og lærisveinar í Newcastle eru með fjögur stig í 14. sæti.
Liverpool hefur hafið tímabilið vel og er með fullt hús stiga að loknum fjórum umferðum. Steve Bruce og lærisveinar í Newcastle eru með fjögur stig í 14. sæti.
James Milner og Joe Gomez eru báðir að snúa aftur en eru þó ekki í líklegu byrjunarliði að mati Guardian.
Alisson markvörður og Nathaniel Clyne eru enn fjarri góðu gamni.
Sean Longstaff er meiddur á ökkla og spilar ekki fyrir Newcastle.
Þá eru Matt Ritchie, Allan Saint-Maximin, Andy Carroll, Dwight Gayle, DeAndre Yedlin og Florian Lejeune allir áfram á meiðslalistanum.
Athugasemdir