Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 21. október 2019 23:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Einkunnir Sheff. Utd. og Arsenal: Norwood bestur - Luiz verstur
Oliver Norwood valinn maður leiksins hjá 90min.com
Oliver Norwood valinn maður leiksins hjá 90min.com
Mynd: Getty Images
Sheffield United lagði Arsenal að velli í kvöld. Leikurinn fór 1-0 fyrir heimamönnum í Sheffield og það var Lys Mousset sem skoraði eftir að Jack O'Connell skallaði hornspyrnu Oliver Norwood fyrir lappir Mousset.

Arsenal hélt boltanum talsvert meira en Sheffield í leiknum en tókst ekki að koma boltanum framhjá Dean Henderson í markverði Sheffield United.

90min.com dæmdi frammistöðu leikmanna í leiknum. Þar fá fjórir leikmenn átta í einkunn hjá Sheffield United. Dean Henderson, Jack O'Connell, Oliver Norwood og Enda Stevens. 90min.com velur Norwood bestan í leiknum.

Hjá Arsenal fá Granit Xhaka og Bukayo Saka hæstu einkunn eða sjö. David Luiz fær lægstu einkunn eða fjóra fyrir sína frammistöðu.

Einkunnir 90min.com

Byrjunarlið Sheffield United: Henderson (8); Baldock (6), Basham (7), Egan (6), O'Connell (8), Stevens (8); Lundstram (6), Norwood (8*), Fleck (7); Mousset (6), McGoldrick (7).

Varamenn: Freeman (7), Sharp (6), McBurnie (7).

Byrjunarlið Arsenal: Leno (6); Chambers (5), Sokratis (6), Luiz (4), Kolasinac (6); Xhaka (7), Guendouzi (6); Pepe (5), Willock (5), Saka (7*); Aubameyang (5).

Varamenn: Martinelli (6), Lacazette (6), Ceballos (5).

*Stjörnumerktir leikmenn eru menn leiksins hjá sínu liði.
Athugasemdir
banner
banner
banner