Steve Bruce, stjóri Newcastle, var hæstánægður með innkomu framherjans Andy Carroll í 2-1 sigrinum á Southampton í gær.
Carroll kom inn á sem varamaður í stöðunni 1-0 fyrir Southampton en hann var fljótur að leggja upp jöfnunarmark fyrir Jonjo Shelvey.
Bruce segir að frammistaðan hafi minnt á það þegar Andy Carroll var upp á sitt besta með Newcastle fyrir tíu árum.
„Innkoma 'Big Andy (stóra Andy)' sýndi smá af því sem við höfðum fyrir tíu árum," sagði Bruce.
„Hann lítur vel út í augnablikinu. Það hjálpaði okkur mikið að fá Stóra Andy Carroll inn á."
Athugasemdir