Tvisvar í viku sýnir nýr leikmaður á sér hina hliðina hér á Fótbolti.net og að þessu sinni er það Kristján Ómar Björnsson leikmaður Hauka. Kristjám sem er miðjumaður er uppalinn í Haukum þar sem hann hefur leikið undanfarin ár.
Hann lék hins vegar annan flokinn hjá Stjörnunni og þá hefur hann leikið með unglinga- og varaliði Örgryte IS og svo Lundens AIS og Askims IK í
sænsku 2. og 3. deildunum. Á síðasta tímabili skoraði hann fjögur mörk í sextán leikjum í fyrstu deildinni en við skulum kíkja á hina hliðina á Kristjáni sem er skemmtileg aflestrar.
Fullt nafn: Kristján Ómar Björnsson
Gælunafn: Rauðkálið, Kátur, Kó-man, discoboltinn.
Aldur: 25 ára
Giftur/sambúð: Maður einsamall
Börn: Í hverri höfn.
Hvað eldaðir þú síðast? Grænimetispizzuna mína margrómuðu.
Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? Heimatilbúnu sósuna mína (leyniuppskrift), papriku, broccoli, blómkál, maís, tómata, ólívur, kotasælu, capers, smá ost og fullt af kryddum.
Hvernig gemsa áttu? MDA III frá T-mobile
Uppáhaldssjónvarpsefni? Horfi varla á sjónvarp en ef það gerist þá eru það yfirleitt beinar útsendingar frá íþróttaviðburðum.
Besta bíómyndin? Geri ekki upp á milli "2001 - a space oddysey" og "Evil Dead".
Hvaða tónlist hlustar þú á? Góða tónlist af öllum gerðum. Ég þykist vera með afbrigðilega fjölbreyttan og þroskaðan tónlistarsmekk, en viðurkenni það þó að techno, drum 'n' bass og disco eigi greiðustu leiðina að hjarta discoboltans.
Uppáhaldsútvarpsstöð? Á ekki útvarp - alla vega þar til nefskatturinn verður tekinn upp.
Uppáhaldsdrykkur? Vatnið er líklega það eina sem maður þreytist aldrei á. Reyndar er Yogi tea - African Spice með hunangi ansi vinsælt þessa dagana.
Uppáhaldsvefsíða ? www.rsk.is og www.ristruflanir.is
Ertu hjátrúarfullur fyrir leiki (ef já, hvernig þá?)? Já mikil ósköp! Ég þarf alltaf að fara í annan sokkinn á undan hinum og að sama skapi að fara í annan skóinn á undan hinum. Þegar ég er búinn að rappa FaðirVorið tvisvar á dollunni þá tel ég skrefin frá búningsklefanum inn á völlinn og ef talan á skrefinu inn á völlinn er oddatala þá neita ég að spila leikinn og tek leigubíl niður í Sundhöll Hafnarfjarðar og syndi 222 metra af bringusundi ti að kveða niðuroddatölupúkann. Restin er of sjúk til að deila með fólki.
Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Nenni sjaldnast að pæla í honum.
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? Félag er ekkert annað en fólkið sem vinnur og spilar fyrir félagið hverju sinni. Ef það fólk er leiðinlegt þá myndi ég ekki nenna að spila fyrir viðkomandi félag. Einnig myndi ég seint spila fyrir félag með þjálfara sem vill að liðið spili leiðinlegan fótbolta, t.d. fótbolta byggðum á 6-3-1 leikkerfinu sem hefur rutt sér til rúms í 1.deildinni upp á síðkastið.
Hvert var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Jimi Hendrix, Pabbi og Maradona
Erfiðasti andstæðingur? Aðeins einu sinni man ég eftir því að hafa hugsað það að einhver andstæðingur væri erfiður. Það var í leik gegn Fram í 4. eða 3. flokki. Það var einhver bölvaður drullusokkur á miðjunni hjá Fram sem mér fannst ekki vera neitt góður en sem sendi boltann alltaf frá sér í fyrstu snertingu og gaf mér þess vegna aldrei færi á að "éta" sig. Djöfull var ég pirraður í þeim leik. Löngu seinna tengdi ég saman og áttaði mig á að þarna var líklegast Freyr Karlsson að verki.
EKKI erfiðasti andstæðingur? Fredrik "Feffe" Karlson var einn gaur sem ég spilaði með í Svíþjóð sem ég virtist geta klobbað að vild?
Besti samherjinn? Við Vignir Svavarsson (handboltatröll numera) þekktum hvorn annan bak og fyrir sem leikmenn þegar við spiluðum hand- fót- og körfubolta saman upp yngri flokkana í Haukum. Það var gott að spila með honum.
Sætasti sigurinn? Gullið úr skalla-á-milli keppninni á Tommamótinu í Eyjum 1989. Ég og Vignir skölluðum 4 sinnum á milli í 15 vindstiga fárviðri, líkt og tvö önnur pör, en við unnum glæsilega á hlutkesti.
Mestu vonbrigði? Eins öfugsnúið og það hljómar þá upplifði ég líklega mestu vonbrigðin eftir síðasta leikinn í mótinu í fyrra þegar við náðum að halda okkur uppi í deildinni! Þá töpuðum við 5-4 á móti KA fyrir norðan í fáranlegasta leik knattspyrnusögunnar þar sem við vorum yfir 3-0 fram á 80 mín. þegar markvörðurinn okkar var rekinn útaf fyrir að tefja??? Síðustu 10 mínúturnar af þeim leik eru efni í eitthvað yfirdramatískt Disneymyndarhandrit... þar sem KA eru "góðu" strákarnir.
Uppáhalds lið í enska boltanum? Leeds United
Uppáhaldsknattspyrnumaður? Javier Zanetti
Besti íslenski knattspyrnumaðurinn fyrr og síðar? Klisjan er að segja Eiður Smári en ég vill frekar segja Hermann Hreiðarsson. Hann er að spila í sömu deild og Eiður, en er alltaf í liðinu sínu og á miklu færri slaka leiki en Eiður. Eiður hefur klárlega hærri "hæsta level" en Hermann er traustari og jafnari leikmaður.
Efnilegasti knattspyrnumaður landsins? Það er einn gutti í Haukum sem gæti orðið hrikalega góður. Ég ætla ekki að eyðileggja það fyrir honum með því að láta hann vita af því - hann er á réttri leið nú þegar.
Fallegasti knattspyrnumaðurinn í deildinni? Óli Jón Kristinsson (aka.
Öldungurinn) - 10. kynþokkafyllsti maður Íslands í símakosningu Rás 2 árið
2003!
Fallegasta knattspyrnukonan? Svava Björnsdóttir ber af í þokka og tíguleika inni á vellinum.
Grófasti leikmaður deildarinnar? Í fyrra var það klárlega einn af leikmönnum Hauka: Rodney Perry.
Besti íþróttafréttamaðurinn? Það er unun að hlusta á Svala Björgvinsson (NBA á Sýn) hakka í sig og hrauna yfir menn. En annars er alltaf gaman að hlusta á lýsingar frá mönnum sem maður skynjar að hafa meira vit á íþróttinni en maður sjálfur og segja hluti sem dýpka skilning manns á því sem ber fyrir augum - en það mun vera afar sjaldheyrt á hljóðrásum íslensks sjónvarps.
EKKI besti íþróttafréttamaðurinn? Geir (er hann ekki Magnússon) á Rúv er hinu megin á endanum miðað við Svala; allt er óheppni og "æ, æ" osfrv. Allt of "gúddí" gaur. Að auki allir þeir sem lýsa íþróttum í sjónvarpi eins þér séu að lýsa kappleik fyrir blinda, sbr. "og Jói sendir út á kantinn á Óla, og Óli sendir fyrir en Kalli skýtur fram hjá". Bjarni Fel var meistari í þessu.
Hver er mesti höstlerinn í liðinu? Tja, nú veit ég ekki. En mig grunar að það sé ekki ég!
Hefurðu skorað sjálfsmark? Tilfinningin segir mér að þau hafi verið þó nokkur, en minningarnar eru bældar.
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Ég veit ekki hvort það hafi verið sérstaklega skemmtilegt en í minningunni er það frekar skondið þegar ég var að spila leik í Svíþjóð og eldingu sló niður í nærliggjandi tré. Samstundis þustu allir leikmennirnir út af vellinu öskrandi eins og smástelpur, nema ég sem stóð einn eftir og fattaði ekkert hvað var í gangi. Ég hafði greinilega ekki verið að fylgjast með fréttunum því bara nokkrum dögum áður hafði einn knattspyrnumaður endað á gjörgæslu eftir að hafa fengið eldingu í sig þegar hann var að spila á sama velli.
Spilar þú Championship Manager tölvuleikinn? Ég spilaði CM1 fyrir meira en áratug síðan. Þegar ég var búinn að vinna úrvalsdeildina með Leeds þar sem Eric Cantona skoraði 52 mörk þá var maður búinn að klára þennan pakka.
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki? 16 ára með Haukum í 3.deildinni.
Hvernig finnst þér Fótbolti.net? Langbesta síðan fyrir íslenskt
fótboltaáhugafólk.
Kíkir þú oft á Fótbolti.net? Já já, næstum daglega.
Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Þeirri fáránlegu reglu að það eigi að endurtaka útspark ef leikmaður tekur við boltanum inni í teig. Það á að vera óbein aukaspyrna í staðinn fyrir hitt
liðið!
Hvern vildir þú sjá á sviði? (tónleikum) Emerson, Lake & Palmer
Hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingu? Það er ekkert leiðinlegt við fótbolta!
Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum? Hmm, hvort er Biggi Veira í gusgus eða Eyjólfur Sverris frægari? Annars lítið um þotulið í símaskránni.
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Þar sem græjurnar/tölvurnar/hljóðfærin mín eru saman komin hverju sinni.
Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna? Frá 0 - 600 sek.
Hver er uppáhaldsÍÞRÓTTAMAÐURINN þinn? Roy Jones jr. og Javier Zanetti. Tveir frekar "athletic" gaurar.
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum? Já, en ég held að maður geri það aðallega til að enduruppgötva þá staðreynd að fótbolti er sú best heppnaða.
Hver er uppáhalds platan þín? Get engan veginn valið einhverja eina plötu. Þær sem hafa verið mikið í spilaranum/undir nálinni sl. daga eru Beach Boys - Pet Sounds, Sly & The Family Stone - There's a Riot Going On, Sutekh - Miasma EP, Emerson, Lake & Palmer - Pictures at an Exhibition.
Hvenær borgaðir þú þig síðast inn á knattspyrnuleik? KA - KR árið 2004 að ég held.
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú? Er að tæta mig í gegnum síðasta draslparið frá Adidas. Glænýtt Hummel skópar bíður prófunar.
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla? Við skulum segja að af prinsippástæðum hafi ég verið ömurlegur í dönsku - enda ömurlegt tungumál þar á ferð.


